Wednesday, May 5, 2010

ný gleraugu *klapp klapp*


Fyrir nokkru síðan skrifaði ég smá færslu um stór gleraugu (nörda/ömmugleraugu) og átti í miklu sálarstríði varðandi hvort ég ætti að fá mér slíka dásemd eða ekki. Eftir vel heppnaðan verslunarleiðangur með systur minni kom ég heim með draumagleraugun fyrir spottprís. Fékk frábæra þjónustu í Gleraugnasmiðjunni í Kringlunn og brosið náðist ekki af mér næstu daga. Ef þetta fer fljótlega úr tísku þá bara verður að hafa það, ég er að fíla þau, og þau eru að fíla mig ;) og ég eyddi ekki það miklu í þau, og þá eru allir sáttir! Sigrún sys fann sér líka gordjöss gleraugu svo nú erum við óstöðvandi.

Fyrir:


Eftir:
Það eru nota bene þurrkuð blóm í umgjörðinni! Jebbs... I'm that cool.. haha! Svo er ég með fína heklaða hálsmenið sem amma gaf mér, það sést ekki nógu vel á þessari mynd, en það er ofsa fallegt.


10 comments:

  1. Ótrúlega flott, og fara þér ótrúlega vel!

    ReplyDelete
  2. Ó jiiiii, nú er ég sko Abbó. Er þvíííílíkt að vanda mig að kaupa ekki neitt, þar á meðal gleraugu, þori ekki einu sinni inn í gleraugnaverslanir B-)

    ReplyDelete
  3. mér finnst þau svo geðveikt töff! eins og eigandinn ;)

    ReplyDelete
  4. svaðalega flott! Mikið er ég ánægð með þig að láta verða að þessu ;)

    ReplyDelete
  5. kjútíness :)

    ReplyDelete
  6. Fara þér mjög vel!!! Ofsa smart:)
    -Svana

    ReplyDelete
  7. nýtt blogg? klapp klapp :)!!!

    ReplyDelete
  8. Mér finnst þessi gleraugu æði.. Gleymdi alltaf að kommenta.

    ReplyDelete
  9. Nýtt blogg skvísa?

    ReplyDelete
  10. This comment has been removed by the author.

    ReplyDelete