Þessi færsla er fyrir minn heittelskaða... sem elskar pegboards. (Hvað ætli þetta heiti á íslensku... einhver?)
Amy Ruppel á þessa fallegu vinnustofu. Ég er ekkert afbrýðisöm, nei nei...
Endurvinnsluhornið
Ég væri til í að hafa svona fallega endurvinnslu"stöð" í þvottahúsinu eða í bílskúrnum (í húsinu sem ég á ekki enn).Í barnaherbergið
Þessi mynd minnir mig á Hús og Híbýli 1996. Yndislega hamingjusöm börn (sem þekkjast annað hvort ekki neitt eða eru systkini og eru nýbúin að rífast alveg heiftarlega.)

Hugmyndatafla
til dæmis skemmtilegt í unglingaherbergi undir ýmis konar plaköt. Ég safnaði haug af póstkortum sem unglingur og hengdi upp á vegg með kennaratyggjói. Þau skildu svo eftir sig ljóta fitubletti á veggjunum, þá lýst mér betur á peg board!
Í eldhúsið
þetta finnst mér alltaf svo fínt, elska að sjá potta og pönnur uppi við, en það fellur svo mikið ryk heima hjá mér (bara mér right?) að ég þyrfti að hengja á þetta hluti sem væru notaðir dags daglega - annars væri ég alltaf að þurrka af pottunum. Þá mega þeir frekar bara dúsa inn í skáp.